Grunnskóli Grundarfjarðar verður settur í dag, mánudaginn 23. ágúst, kl. 16.00 í íþróttahúsi. Eftir setninguna fara nemendur með umsjónarkennara sínum í stofur og fá afhenta stundarskrá o.fl. 
Kennsla hefst síðan á morgun, þriðjudag, en kennt verður til 12.30 þann dag og síðan skv. stundarskrá eftir það.