Skólaslit grunnskólans verða í dag  3. júní  kl. 18.00 í íþróttahúsinu.

Kl. 16.00-18.00 verður kaffisala og sýning á verkum nemenda. Foreldrafélag Grunnskóla Grundarfjarðar stendur fyrir kaffisölunni og allur ágóði rennur í sjóð félagsins sem er notaður í ýmis verkefni í þágu nemenda.