Þann 9. ágúst sl. hóf Leikskólinn Sólvellir starfsemi að nýju eftir sumarhlé.  Grunnskóli Grundarfjarðar verður settur þriðjudaginn 21. ágúst n.k. kl. 17.00 í íþróttahúsinu.   Ragnheiður Þórarinsdóttir verður skólastjóri á næsta skólaári þar sem Anna Bergsdóttir hefur fengið námsleyfi fyrir það tímabil.  Kennsla hefst í grunnskólanum skv. stundaskrá miðvikudaginn 22. ágúst n.k.   Fjölbrautaskóli Snæfellinga verður settur miðvikudaginn 22. ágúst n.k. en hluti af kennslu í skólanum hefst þegar um komandi helgi.  Tónlistarskóli Grundarfjarðar verður settur innan skamms.

Nemendum og starfsfólki skólanna er óskað velfarnaðar í mikilvægum störfum komandi skólaárs.