Hafin er vinna við gerð skólastefnu Grundarfjarðarbæjar. En hvað er skólastefna og til hvers er hún?

 

Í stuttu máli er skólastefna leiðarvísir um skólastarf í sveitarfélaginu. Í skólastefnu eru dregnar fram þær áherslur í skólamálum sem íbúar koma sér saman um. Skólastefna er grundvöllur fyrir ákvarðanatöku og skýrir hvaða leiðir á að fara til að ná áætluðum árangri.

Jafnframt er leitast við að skýra þau grunngildi sem aðilar skólasamfélagsins vilja að skólarnir standi fyrir og einkenni störf þeirra. Skólastefna markar framtíðarsýn í skólamálum og skiptir allt samfélagið máli.

 

Skólarnir eru mikilvægustu stofnanir samfélagsins og jafnframt fer stærstur hluti fjármuna sveitarfélaga til reksturs skóla. Nauðsynlegt er að skólarnir séu í stöðugri þróun í takt við breytingar í samfélaginu. Það er því áríðandi að vera með skýra stefnu um hvernig eigi að forngangsraða verkefnum. Til að hægt sé að meta árangur á raunhæfan hátt er mikilvægt að hafa skýra stefnu og markmið.

Stýrihópur hefur verið stofnaður um verkefnið og hefur honum verið falið að taka að sér yfirumsjón með vinnunni. Í hópnum eru Aðalsteinn Þorvaldsson sóknarprestur, Anna Bergsdóttir skólastjóri Grunnskólans, Ásthildur E. Erlingsdóttir formaður skólanefndar, sem jafnframt er formaður hópsins, Matthildur S. Guðmundsdóttir leikskólastjóri og Sigríður G. Arnardóttir fulltrúi í skólanefnd. Áður hafði Gunnar Kristjánsson verið ráðinn verkefnisstjóri.

Þriðjudaginn 8. október nk. verður haldinn umræðu- og hugarflugsfundur með foreldrum barna í leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla sem auglýstur er nánar hér í blaðinu. Síðar verður fundur með starfsfólki skólanna og síðar verður öllum íbúum gefinn kostur á að leggja fram sínar áherslur.

Gert er ráð fyrir því að vinnu við gerð skólastefnu ljúki í vor.

 

Björn Steinar Pálmason, bæjarstjóri