Grundarfjarðarbær auglýsir starf skólastjóra Grunnskóla Grundarfjarðar laust til umsóknar.

Skólastjóri ber fag- og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans, stjórnar honum og hefur forgöngu um mótun

faglegrar stefnu í samstarfi við skólanefnd og bæjarstjórn.

Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra sýn í skólamálum og er reiðubúinn að leita nýrra leiða í

skólastarfi.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

· Kennsluréttindi og kennslureynsla á grunnskólastigi er skilyrði

· Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg

· Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar

· Hæfni í mannlegum samskiptum

 

Í Grunnskóla Grundarfjarðar stunda tæplega 100 nemendur nám. Talsvert er um samkennslu árganga

sem hefur skapað áhugaverð tækifæri. Skólinn er vel búinn tækjum og hann er í fararbroddi grunnskóla

á landinu í spjaldtölvuvæðingu.

 

Umsóknum um ofangreint starf skal fylgja greinargott yfirlit yfir menntun, fyrri störf, ábendingar um

meðmælendur og annað það sem umsækjandi telur máli skipta.

 

Nánari upplýsingar veita bæjarstjóri og skrifstofustjóri í síma 430 8500 eða með því að senda fyrirspurnir

á thorsteinn@grundarfjordur.is eða sigurlaug@grundarfjordur.is

 

Umsóknarfrestur er til 30. maí nk.