- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Á 659. fundi bæjarráðs, 18. ágúst 2026, samþykkti bæjarráð að veita bæjarstjóra heimild til að sækja um aðild sveitarfélagsins að Brák íbúðafélagi, sem er samstarfsvettvangur sveitarfélaga um uppbyggingu og rekstur hagkvæms íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni.
Brák íbúðafélag er óhagnaðardrifið félag í eigu sveitarfélaga sem vinnur að uppbyggingu, kaupum og rekstri íbúðarhúsnæðis víðs vegar um landið með það að markmiði að efla húsnæðisöryggi og fjölbreytta búsetukosti.
Með aðild að félaginu vill Grundarfjarðarbær styrkja möguleika sína til samstarfs um húsnæðisuppbyggingu. Þörf er á auknu framboði leiguhúsnæðis í Grundarfirði og getur aðild að Brák orðið mikilvægt skref til að mæta þeirri þörf.
Þá hefur sveitarfélagið, ásamt öðrum sveitarfélögum, lýst yfir áhuga á samtalið við Bjarg íbúðafélag um mögulega uppbyggingu leiguhúsnæðis á svæðinu. Markmiðið er að auka framboð húsnæðis og mæta ólíkum húsnæðisþörfum íbúa.