Frétt á vísi.is:

Listahópurinn Weird Girls Project verður áberandi á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Northern Wave Festival sem verður haldin í Grundarfirði í annað sinn í lok febrúar.

Þar ætla stúlkurnar að frumsýna nýtt tónlistarmyndband auk þess sem nýjasta uppátæki þeirra verður framkvæmt á hátíðinni.  Einnig mun forsprakki Weird Girls, Kitty Von Sometime, spila í "næntís" partíi ásamt Dj Mokki og útvarpskonunni Margréti Maack.

Fyrsta Northern Wave hátíðin í fyrra heppnaðist einkar vel og í ár voru sendar til keppni yfir níutíu stuttmyndir og tónlistarmyndbönd.  Úr þeim bunka voru fimmtíu myndir valdar frá fimmtán löndum.  Hátíðin fer fram dagana 27. febrúar til 1. mars.