Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi lét taka saman skýrslu um áhrif kvótaskerðingarinnar á Vesturlandi.  Fram kemur að áhrifin verða m.a. þau að velta minnkar í Grundarfirði um tæpan milljarð króna.  Líklegt er að áhrifin verði margvísleg á athafnalífið í Grundarfirði og á Snæfellsnesi í heild.