- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
SLÁTTUGENGIÐ OG STÖRF VIÐ ALMENNA UMHIRÐU
Hjá Grundarfjarðarbæ leggjum við mikið uppúr því að bærinn okkar sé snyrtilegur. Við viljum vera "keppnis" í því!
Á sumrin þarf að slá og snyrta grænu svæðin, þökuleggja, mála og smíða og við þurfum gott fólk í það.
Starfið í sláttugenginu felst í garðslætti og umhirðu opinna svæða bæjarins, en líka í öðrum umhverfisverkefnum og viðhaldsverkefnum, mest utanhúss.
Umsækjendur þurfa að vera fædd árið 2009 eða fyrr, hafa áhuga á að læra handbragð við umhirðu og viðhald, hafa gaman af útiveru, auk þess að vera sjálfstæð í vinnubrögðum. Hvetjum öll kyn til að sækja um, en viljum sérstaklega hvetja stelpur til þátttöku.
Starfstímabil er frá miðjum maí til síðari hluta ágúst. Vinnutími er að jafnaði kl. 8:00-16:00 virka daga.
Störfin heyra undir bæjarverkstjóra. Upplýsingar gefur Elvar í síma 691-4343 eða verkstjori@grundarfjordur.is