Slöbbum saman!
Slöbbum saman!

 

 

Slöbbum saman er átaksverkefni  ÍSÍ, UMFÍ, Heilsueflandi samfélags og Sýnar til að fá fólk til að hreyfa sig.

Fátt skilar jafn góðum árangri fyrir líkama og sál og hreyfing og létt hreyfing er eitthvað sem við flest getum gert. Við hvetjum því landann til að fara út og labba. Þar sem færðin vinnur ekki alltaf með okkur á þessum árstíma höfum við húmorinn með og ætlum því að labba í slabbi eða  SLABBA saman.

Við viljum fá ALLA landsmenn með okkur í lið til að slabba saman, hvort sem það er að fara út og hoppa í pollum í fimm mínútur, telja ljósastaurana eða sigra himnastigann í Kópavogi. Sigurvegarinn er sá eða sú sem sigrar sjálfan sig og tekur þátt. Nú er um að gera að ræsa vinahópinn, fjölskylduna, saumaklúbbinn, vinnufélagana og Zoom-hópinn út í rokrassgatið, slabba saman og efla líkama og sál.

Þetta er ekki um það hver hreyfir sig mest heldur viljum við hvetja ykkur öll til að bæta við ykkur hreyfingu.

Hvort sem þið hafið verið á fullu eða ekki gert neitt þá er hreyfing grunnurinn að andlegri vellíðan.

Aukum gleði í samfélaginu og SLÖBBUM okkur í átt að meiri gleði.

Það er æðislegt ef þið getið hjálpað okkur að dreifa gleðinni og setja myndir ásamt hlekk á www.visir.is/slobbumsaman inn á vefsíðu félagsins þíns, Facebook-síðuna eða hvar sem er.

Og líka taka þátt og hvetja aðra til að taka þátt.

Slöbbum saman!

Nánari upplýsingar og skráning hér