Smáskipanám kemur í stað þess sem áður var nefnt 30rl réttindanám (pungapróf) og miðast atvinnuskírteinin nú við lengd skipa í stað brúttórúmlestatölu áður. Réttindin miðast skv. því við skip 12 metrar og styttri að skráningarlengd, m.v. að hafa lokið 12 mánaða siglingatíma skv. reglugerð nr. 393/2008. Námið er samstarfsverkefni Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi og  Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og kennt með faglegri ábyrgð Skipstjórnarskóla Tækniskólans. Hverjum námsþætti lýkur með skriflegu prófi.

Námsmat: Nemendur þurfa að lágmarki 5 í einkunn í stöðugleika og siglingafræði og að lágmarki 6 í siglingareglum til þess að ljúka náminu.

Kennsla fer fram í grunnskólanum í Stykkishólmi

Leiðbeinandi: Magnús Jónsson

Lengd: 115 kennslustundir (40 mínútur)

Kennslutími: Námskeiðið hefst mánudaginn  27. janúar .  Kennt verður í 4 lotum, ein vika í senn. Á virkum dögum er reiknað með að kenna kl.17:30 – 21:30 og kl. 9:00 – 13:00 á laugardögum og sunnudögum. Kennslutími verður þó endanlega ákveðinn í samráði við þátttakendur.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Jónsson  á netfangið magnusjon@simnet.iseða í síma 892 7139

Skráningar eru á vef Símenntunar www.simenntun.iseða í síma 437 2390

Verð: 150.000 kr. Innifalið í verði er sjókort, allar námsbækur og próf.