Frétt á vef Skessuhorns 14. júlí 2009:

Fjórði flokkur stúlkna af Snæfellsnesi, (Snæfellsbær, Grundarfjörður og Stykkishólmur) ásamt þjálfurum og fararstjórum voru glaðar og spenntar þegar þær mættu í flugstöðina í Keflavík árla síðasta sunnudagsmorgun. Þær voru á leið í flug til Gautaborgar í Svíþjóð á árlegt fótboltamót Gothia Cup en yfir 60 þjóðir taka þátt í þessu móti. Alls eru níu fótboltalið sem fara frá Íslandi í ár. Gothia Cup er með stærri fótboltamótum þar sem krakkar á aldrinum 13 - 17 ára taka þátt og stendur mótið yfir fram á næsta laugardag. Hægt er að fylgjast með gangi mála á:  www.gothiacup.se