Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Snjóhengjur og klaki

Nokkuð er um að grýlukerti og snjóhengjur hafi myndast á húsum,  og því vörum við fólk við að þau geti fallið fyrirvaralítið. Að sama skapi biðjum við húseigendur og verslunarfólk að gera ráðstafanir, að skoða ástand sinna húsa og fjarlægja grýlukerti/klaka og snjó ef þurfa þykir.  Það getur skapað verulega hættu fyrir gangandi vegfarendur þegar þetta rennur af húsþökum.