Þriðjudaginn 3. janúar 2012 verður græna tunnan losuð og eru íbúar hvattir til að moka vel frá sorptunnum til að auðvelda starfsmönnum aðgengi að þeim.

Mikilvægt er að íbúar reyni að liðka fyrir sorphirðu eins og kostur er. Mjög mikið hefur snjóað og eru sumar sorptunnur bókstaflega á kafi í snjó. Ef ekki er unnt að komast að sorptunnu með þokkalegu móti er hætt við að ekki verði losað.