Ertu að leita að áhugaverðu sumarstarfi. Ertu góð/ur í tungumálum og með ríka þjónustulund?

Leitum að sumarstarfsmönnum í upplýsingamiðstöð ferðamanna í Grundarfirði. Viðkomandi starfsmenn munu jafnframt sinna veitingasölu. Góð tungumálakunnátta og góð þekking á staðháttum æskileg.

Vinnutími er breytilegur á opnunartíma upplýsingamiðstöðvar frá byrjun júní til ágústloka.

Sækja um sumarstarf í upplýsingamiðstöð ferðamanna.

Umsóknarfrestur er til og með 20. maí nk.

Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofunni í síma 430 8500. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á grundarfjordur@grundarfjordur.is