Blágræn beð í Hrannarstíg
Blágræn beð í Hrannarstíg

 

Staðan á blágrænum regnbeðum við Hrannarstíg

Að undanförnu hefur verið unnið að endurmati á stöðu þeirra blágrænu ofanvatnslausna sem settar voru upp í bænum fyrir rúmu ári síðan. Regnbeðin sem komið var fyrir við Hrannarstíg norðan Grundargötu eru enn ekki fullkláruð og verður gengið frá þeim endanlega næsta vor.

Blágræna verkefnið í Grundarfirði er stórt þróunarverkefni. Hluti styrkjarinns úr LIFE-Vatnalíf verkefninu er sérstaklega ætlaður í rannsóknir og þróunarstarf, en Grundarfjarðarbær er fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að innleiða slíkt kerfi fyrir heilt þéttbýli til að létta á fráveitukerfi bæjarins. Vöktun og rannsóknarvinna síðustu mánuði hefur gefið okkur mikilvægar upplýsingar og reynslu af virkni beðanna.

Eftirfarandi aðgerðir eru áætlaðar við beðin á Hrannarstígi norðan Grundargötu á næstunni:

  • Jarðvegsskipti: Skipt verður um jarðveg í efri beðunum, en núverandi jarðvegur reyndist of þéttur þannig að vatn sígur ekki nægilega vel niður.
  • Ný gróðurþekja: Malarþekja beðanna verður fjarlægð og gróðurþekja sett í staðinn. Enn er unnið að því að finna réttu plönturnar sem henta grundfirskum veðuraðstæðum. Mismunandi gróður þarf að vera í beðum þar sem meira vatns- og snjóálag á sumum beðum krefst harðgerðari gróðurs.
  • Betra vatnsflæði: Setja þarf upp leiðara á milli beða til að beina vatninu rétta leið á milli þeirra.

  • Uppsetning setgildra: Setja þarf upp setgildrur þar sem ofanvatnið rennur inn í beðin. Gildrurnar fanga leðju, sand og svifryk af götunum svo beðin stíflist ekki og jarðvegurinn haldi gegndræpi sínu sem lengst.
  • Landhalli við Sólvelli: Búa þarf til landhalla við gatnamót Sólvalla til að tryggja að vatnið renni niður Hrannarstíg frekar en inn á Sólvelli eða Eyrarveg.

  • Vetrarþjónusta og snjómokstur: Endurmeta þarf snjómokstur á svæðinu svo vatn og krapi eigi greiða leið um beðin. Nú þegar er unnið að gerð leiðbeininga varðandi snjómokstur við beðin.

Rannsóknir og mælikerfi Háskóla Íslands

Samhliða verklega hlutanum er lögð rík áhersla á vísindalegan grunn og vöktun í samstarfi við Háskóla Íslands. HÍ stýrir mikilvægum rannsóknum á virkni beðanna við íslenskar og krefjandi aðstæður í Grundarfirði. Meðal annars verður komið fyrir mælikerfi í til að mæla ísig, vatnsflæði og áhrif frosts og snjós á vatnsmiðlun. Þessar mælingar munu veita dýrmæta þekkingu á því hvernig jarðvegur og gróður vinna saman gegn flóðatoppum og tryggja rétta hönnun regnbeða til framtíðar.

Áætlaðar framkvæmdir í vetur og næsta vor í Vatnalífs-verkefninu

Auk vinnunnar við Hrannarstíg eru nokkur önnur verkefni á dagskrá tengd blágrænum lausnum:

  • Endurmótun landslags ofan við Ölkelduveg 17–37
  • Endurmótun landslags ofan við Fellasneið 2–26
  • Hönnun og framkvæmd í Paimpol-garði
  • Hönnun og framkvæmd á regnbeðum austan megin í efri hluta Hrannarstígs

Grundarfjarðarbær þakkar íbúum kærlega fyrir þolinmæði og skilning á meðan unnið er að lokafágangi þessara mikilvægu umhverfisinnviða.