Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

 

Stækkun Grundarfjarðarhafnar ekki í umhverfismat

Skipulagsstofnun birti í gær, 11. febrúar 2026, ákvörðun sína um að stækkun hafnarsvæðis Grundarfjarðarhafnar skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Sjá hér á vef Skipulagsstofnunar [https://island.is/s/skipulagsstofnun/frett/staekkun-hafnarsvaedis-grundarfjardarhafnar-sunnan-midga… og hér er ákvörðunin í heild sinni [https://assets.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/mw6XrZ4xQU3nghi7EwEnI/b96af65acf02ed5b7c148a3594da1c72/St… 

Það var Grundarfjarðarhöfn sem sendi stofnuninni erindi í nóvember sl. og óskaði ákvörðunar um matsskyldu í tengslum við yfirstandandi deiliskipulagsgerð vegna stækkunar Grundarfjarðarhafnar með landfyllingu. 

Í niðurstöðukafla ákvörðunarinnar segir að um sé að ræða umfangsmikla framkvæmd í mikilli nálægð við íbúðabyggð á svæði sem þegar njóti verndar, en jafnframt að framkvæmdasvæðið sé allt innan hafnarsvæðis sem þegar hafi verið raskað og mótast af hafnarstarfsemi. Helstu áhrif framkvæmdanna séu annars vegar ryk- og hljóðmengun fyrir nærliggjandi íbúa meðan á framkvæmdum stendur, og hins vegar áhrif á vatnshlot og lífríki sjávar. Tekur Skipulagsstofnun undir ábendingar frá Umhverfis- og orkustofnun, Hafrannsóknastofnun og Heilbrigðiseftirliti Vesturlands um mótvægisaðgerðir vegna þessa, en að mati Skipulagsstofnunar kalla þættir sem falla undir eðli, staðsetningu og eiginleika hugsanlegra áhrifa framkvæmdarinnar ekki á að framkvæmdin undirgangist mat á umhverfisáhrifum.

Athygli er vakin á því að þessi ákvörðun Skipulagsstofnunar er kæranleg til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, og kærufrestur er til 11. mars næstkomandi. 

Hér má nálgast öll gögn málsins í gagnagrunni umhverfismats. [https://island.is/s/skipulagsstofnun/gagnagrunnur-umhverfismats/staekkun-hafnarsvaedis-grundarfjard…