Herra Nóvember

Nokkrir vaskir drengir í Slökkvilið Grundarfjarðar hafa tekið sig til og gert dagatal fyrir árið 2010. Þetta skemmtilega framtak er hugsað til fjáröflunar fyrir slökkviliðið á þessum erfiðu tímum og verður ágóðanum varið til kaupa á björgunarklippum, námskeiða fyrir slökkviliðsmenn og annarra verkefna til eflingar sveitarinnar. Dagatalið er til sölu í Gallerí Kind og einnig munu fyrirsæturnar ganga í hús á næstu dögum. Dagatalið kostar 2.500 kr.