Grundarfjarðarbær auglýsir starf skipulags- og byggingafulltrúa laust til umsóknar. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa starfið á traustum grunni. Skipulags- og byggingafulltrúi ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja, úttektum, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa.

Helstu verkefni:

Ø  Framkvæmd skipulags- og byggingamála

Ø  Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir og útreikningar

Ø  Undirbúningur og eftirfylgni funda skipulags- og umhverfisnefndar

Ø  Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar að verkefnum á sviði byggingamála

Ø  Yfirumsjón framkvæmda og eignasýslu í sveitarfélaginu

Ø  Önnur verkefni

 

Hæfniskröfur:

Ø  Menntun og löggilding, skv. ákvæðum 8. og 25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 og 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er nauðsynleg

Ø  Þekking og reynsla af úttektum og mælingum

Ø  Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingareglugerð

Ø  Reynsla af stjórnun er æskileg

Ø  Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur

Ø  Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar

Ø  Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku

Ø  Góð almenn tölvukunnátta

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri og skrifstofustjóri í síma 430 8500 eða á netfangi thorsteinn@grundarfjordur.is og sigurlaug@grundarfjordur.is. Umsóknir skulu sendast á ofangreind netföng. Umsókn skal fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsóknarfrestur er til 5. ágúst 2018