Grundarfjarðarbær auglýsir eftir skólaliða við Grunnskóla Grundarfjarðar og Íþróttahús Grundarfjarðar. Um er að ræða tímabundið starf næsta vetur.

Starfsmaður mun sinna þrifum og gæslu. Um 90% starf er að ræða.

 

Nánari upplýsingar veitir Anna Bergsdóttir, skólastjóri, í síma 430 8555 eða á netfangi annberg@grundarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsness (SDS).

Umsóknarfrestur er til 15. júlí 2013. Ráðið er í starfið frá 6. ágúst 2013.

Umsóknareyðublöð er að finna á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar, www.grundarfjordur.is

Sækja um starf skólaliða