Starfsmaður í íþróttahús/sundlaug

Grundarfjarðarbær auglýsir laust starf sundlaugarvarðar/baðvarðar í Íþróttahúsi og sundlaug Grundarfjarðar. Vinnutími er 15:50-21:30 virka daga og laugardaga 12:30-17:30. Um tímabundna ráðningu er að ræða, frá 23.08.2022 til 20.05.2023.

 Starfssvið:

  • Klefa- og baðvarsla fyrir íþróttahús og sundlaug
  • Öryggisgæsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
  • Þrif 
  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini og notendur íþróttahúss/sundlaugar

Hæfniskröfur:

  • Góð samskiptahæfni
  • Rík þjónustulund
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og góðir samstarfshæfileikar
  • Tölvukunnátta

Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að fara fram á sakavottorð umsækjenda, í samræmi við lög.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og að standast hæfnispróf fyrir sundlaugarverði.

Laun og starfskjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst 2022.

Sótt er um gegnum www.grundarfjordur.is

Ráðið er í starfið frá 22. ágúst 2022 eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Ólafsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi í síma 430 8500 eða á netfangið ithrott@grundarfjordur.is