Í síðustu viku stóð Samfés samtök félagsmiðstöðva á Íslandi fyrir námskeiði fyrir starfsmenn félagsmiðstöðva á Vesturlandi.
Er þessi námskeiðspakki liður í fræðsluferð Samfés fyrir starfsfólk félagsmiðstöðva landsins sem nú stendur yfir.

Góð mæting var og mættu starfsmenn félagsmiðstöðva frá Búðardal, Stykkishólmi, Snæfellsbæ, Grundarfirði, Akranesi og Borgarnesi á námskeiðið.

Farið var yfir faglegt og uppeldislegt umhverfi starfsins og þróun þá sem verið hefur í félagsmiðstöðvarmálum landsins á síðustu árum.
Fyrirlesarar á námskeiðinu voru þau Linda Udengård Æskulýðs- og forvarnafulltrúi Kópavogs, Ólafur J. Stefánsson  forstöðumaður hjá íþrótta- og tómstundaráði Hafnarfjarðar
og Eygló Rúnarsdóttir verkefnisstjóri hjá íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur.

Á námskeiðinu var leitast við að svara spurningunum eins og:

Hvað eru félagsmiðstöðvar og staða þeirra í nútímasamfélagi ?
Hvaða faglegu kröfur eru gerðar til starfsfólks félagsmiðstöðva ?
Hvaða starfsþættir einkenna félagsmiðstöðvastarf ?

Ljóst er að víða á Vesturlandi er verið framkvæma flott starf með börnum og unglingum í félagsmiðstöðum og skólum enda þörf fyrir starfsemina og mikilvægi öllum ljós. 

Sótt á www.borgarbyggd.is