Steinþórsmót fyrir 14 ára og yngri verður haldið miðvikudaginn 4. júní kl. 17.00 og Steinþórsmót  fyrir 15 ára og eldri verður haldið fimmtudaginn 5. júní kl. 18.00.  Við viljum vekja athygli á því að okkur vantar foreldra til starfa í frjálsíþróttaráð UMFG.

Steinþórsmót hjá börnum 14 ára og yngri verður 4. júní kl. 17.00, þáttökupeningar verða fyrir 10 ára og yngri en veitt verða verðlaun fyrir stráka og stelpur í adlursflokkunum 12-12 ára og 13-14 ára.  Öllum er velkomið að taka þátt, skráning fer fram á staðnum.   Fyrir krakka 15 ára og eldri er mótið 5. júní kl. 18.00.  Keppt veður í 100m hlaupi, langstökki, hástökki, kúluvarpi, spjótkasti, kringlukasti auk sleggjukasti karla.  Veitt verða verðlaun fyrir 1. -3. sæti karla og kvenna.  Bikar fyrir besta árangur og besta afrek mótsins.  Öllum velkomið að mæta og taka þátt.   Kveðja, frjálsar UMFG....