- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Grundarfjarðarbær hefur nú birt nýjar reglur og gjaldskrá vegna stöðuleyfa sem samþykktar voru fyrr á árinu af bæjarstjórn. Með nýju reglunum er afgreiðsla stöðuleyfa einfölduð og er stöðuleyfisgjaldið lækkað um 55% miðað við fyrra gjald fyrir hefðbundið stöðuleyfi til eins árs. Af því tilefni eru eigendur gáma og annarra stöðuleyfisskyldra lausafjármuna minntir á að sækja þarf um stöðuleyfi til byggingarfulltrúa og ennfremur að sækja þarf um að nýju þegar stöðuleyfi er runnið út að tólf mánuðum liðnum. Sækja skal um stöðuleyfi með rafrænum hætti í íbúagátt og verður umsóknin tekin fyrir á næsta afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
Stöðuleyfisgjaldið er með nýju gjaldskránni lækkað í kr. 39.500 og við það bætist hefðbundið afgreiðslugjald, sem nú er kr. 18.727. Heildarupphæðin verður því kr. 58.727, en var áður 129.164 fyrir hefðbundið 12 mánaða stöðuleyfi. Þetta er heildarlækkun upp á 55%. Ennfremur er hægt að sækja um eitt stöðuleyfi fyrir fleiri en einn sambærilegan lausafjármun á sömu lóð.
Sækja þarf um stöðuleyfi vegna allra lausafjármuna sem standa eiga lengur en í tvo mánuði. Þetta eru einkum gámar, en á jafnframt við um fleiri muni, eins og til dæmis hjólhýsi sem standa utandyra milli 1. október og 1. maí, og um báta. Ekki þarf þó að sækja um stöðuleyfi á svæðum sem sérstaklega eru skipulögð fyrir geymslu lausafjármuna, eins og t.d. geymslusvæði bæjarins í Ártúni 4 eða fyrir geymslu báta á hafnarsvæði.
Aðeins er tekið við rafrænum umsóknum um stöðuleyfi í gegnum íbúagátt á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar. Eftir innskráningu er farið í Umsóknir, þaðan á Tæknisvið og þar er sótt um stöðuleyfi. Umsókn þarf að fylgja einfaldur uppdráttur sem sýnir staðsetningu lausafjármunar á lóð. Einnig kann að þurfa samþykki nágranna ef viðkomandi hlutur er staðsettur nærri lóðamörkum, eða samþykki eiganda/lóðarhafa sé hinn ekki umsækjandi. Umsækjandi ber ábyrgð á því að ekki stafi hætta af lausafjármunum og að hann torveldi ekki aðgengi neyðarbíla.
Við minnum ennfremur á að hægt er að fá aðstöðu fyrir lausafjármuni á geymslusvæði Grundarfjarðarbæjar að Ártúni 4, en svæðið er læst og vaktað með öryggismyndavélum. Hér er gjaldskrá svæðisins.
Sérstaklega er vakin athygli á 7. grein reglnanna sem fjallar um heimildir byggingarfulltrúaembættisins til að fjarlægja lausafjármuni. Sé ekki sótt um stöðuleyfi vegna lausafjármunar áskilur Grundarfjarðarbær sér rétt til að flytja þá á kostnað eiganda á geymslusvæði bæjarins og innheimta leigugjald skv. gjaldskrá.