Við minnum á borgarafundinn í samkomuhúsinu á morgun 12. október sem ber nafnið STÖÐVUM EINELTI. Hvetjum við alla til að mæta. 

Sjá nánar hér.

Fundirnir eru liður í eineltisátaki sem Heimili og skóli - landssamtök foreldra, Liðsmenn Jerico, Olweusaráætlunin og Ungmennaráð SAFT standa fyrir í samstarfi við Símann, mennta-  og menningarmálaráðuneytið, félags- og tryggingamálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og styrktaraðila, með fundum sem haldnir eru á 11 stöðum á landinu.Umfjöllunarefni fundanna er einelti og ungt fólk, netið og ábyrgð samfélagsins. Leikhópar unglinga undir handleiðslu leiklistarkennara eða leiðbeinanda á hverjum stað, setja upp leiksýninguna „Þú ert það sem þú gerir á netinu“ eftir Elítuna og Rannveigu Þorkelsdóttur.

Borgarafundir og jafningjafræðslufundir hafa nú verið haldnir í Árborg, á Ísafirði og í Reykjanesbæ og framundan eru fundir á eftirtöldum stöðum: Sauðárkróki 5. október, Akureyri 6. október, Grundarfirði 12. október, Fljótsdalshéraði 19. október, Borgarbyggð 21. október, Vestmannaeyjum 26. október, Höfn í Hornafirði 28. október og í Reykjavík 3. nóvember.