- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Það verður á nógu að taka um helgina í Grundarfirði, en eins og annarstaðar verður gengið til sveitarstjórnarkosninga laugardaginn 16. maí.
Það er hinsvegar ekki það eina því um helgina verður síðasti hluti Íslandsmóts U-12 (12 ára og yngri) og U-14 (14 ára og yngri) í blaki haldið í Grundarfirði og Snæfellsbæ. UMFG stendur að skipulagi mótsins og er í mörg horn að líta, en von er á um 200 börnum og yfir 40 þjálfurum og liðsstjórum. Mót sem þetta krefst mikillar skipulagningar og er vinna sjálfboðaliða nauðsynleg til þess að allt gangi upp. Foreldrar og forráðamenn iðkenda hafa verið duglegir að skipta með sér verkum, allt frá því að standa við grillið, vera á vakt í skólanum og að baka fyrir sjoppuna.
Hvetjum við alla til þess að leggja leið sína í íþróttahúsið í Grundarfirði eða Snæfellsbæ og sjá krakkana spila.
Á sunnudaginn, 17. maí, er svo von á fyrsta skemmtiferðaskipi sumarsins til hafnar. Fridtjof Nansen kemur þá í sína fyrstu heimsókn af þremur þetta sumarið. Fyrir áhugasama verður komum skemmtiferðaskipa í sumar gerð skil á Facebook síðu Grundarfjarðarhafnar líkt og í fyrra.