Stóra upplestrarkeppnin var haldin í Grundarfjarðarkirkju í gærkvöldi.  Allir lesarar frá skólunum fjórum sem getið er hér fyrir neðan stóðu sig mjög vel og dómarar voru ekki öfundsverðir af því að skipa í þrjú efstu sætin. Úrslit urðu þessi:

1. sæti Lilja Margrét Riedel Stykkishólmi
2. sæti Guðmundur Haraldsson  Grundarfirði
3. sæti Elín Sigurðardóttir  Grundarfirði

Hjörtur Steinn Fjeldsted fékk aukaverðlun fyrir góða frammmistöðu og tilþrif.  Allir þrír keppendurnir frá Grundarfirði fengu því viðurkenningu fyrir sitt framlag í keppninni og getum við því verið stolt af árangri okkar nemenda