Fjölbrautaskóli Snæfellinga óskar eftir því að ráða stuðningsfulltrúa. Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2009.  

 

 

Fjölbrautaskóli Snæfellinga óskar að ráða stuðningsfulltrúa í tvær stöður, eina 100% stöðu og eina 70% stöðu skólaárið 2009-2010.

Störfin felast í stuðningi og aðstoð við nemendur á starfsbraut. Leitað er að starfsmönnum sem hafa góða samskiptahæfileika og hafa áhuga á að vinna með ungu fólki. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi. Laun greiðast eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Ráðið verður í stöðurnar frá 15. ágúst 2009.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Skúlínu Hlíf Kjartansdóttur, skólameistara, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði eða á netfangið skulina@fsn.is í síðasta lagi 10. júlí 2009. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vef skólans www.fsn.is eða hjá skólameistara skulina@fsn.is – eða í síma 693 4967.