Þjónusturáð Vesturlands auglýsir eftir umsóknum um styrki til náms-, verkfæra- og tækjakaupa á grundvelli 27. greinar í lögum um málefni fatlaðra. Umsækjendur skulu eiga lögheimili á Vesturlandi, búa við varanlega örorku og vera orðnir 18 ára.

Styrkir verða veittir til greiðslu menntunar eða námskeiðskostnaðar eða kaupa á verkfærum – áhöldum sem ætla má að auðveldi fötluðu fólki að skapa sér heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi í kjölfar endurhæfingar.

 

Umsóknir skulu berast til félagsþjónustu Akraness, félagsþjónustu Borgarbyggðar félagsþjónustu Hvalfjarðarsveitar eða Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga fyrir 20. nóvember 2012.