Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.

 

Markmið verkefnis:

  • Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta.
  • Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja.

 

Sérstök áhersla er lögð á:

  • Verkefni sem skapa ný störf
  • Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggir á hönnun
  • Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarfi
  • Verkefni sem eru að stíga fyrstu skref á alþjóðamarkaði

 

Styrkir geta að hámarki numið 50>% af heildarkostnaði verkefnisins. Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. í tækjum og tækjabúnaði.

 

Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið hildur@nmi.is

Umsóknarfrestur er til kl 12 á hádegi þann 28. september.