Nú eru einungis 17 dagar þar til Grundfirðingar halda bæjarhátíð sína „Á góðri stund“. Hátíðarstjóri er Rósa Guðmundsdottir og er hún nú í óða önn að undirbúa og skipuleggja. Hægt er að hafa samband við Rósu í síma 869 2701  eða í tölvupósti: rosa@ragnarogasgeir.is

 

Gula, rauða, græna og bláa hverfið eru einnig komin af stað í skipulagninu hverfahátíða. Hverfisstjórar eru:

Gula: Katrín Elísdóttir, Kristín Soffaníasdóttir, Sjöfn Sverrisdóttir og Unnur Birna Vilhjálmsdóttir.

Rauða: Kristín Lilja Friðriksdóttir.

Græna: Allir íbúarnir.

Bláa: Aðalheiður Birgisdóttir og Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir.

 

Hverfisstjórum er velkomið að auglýsa næstu fundi og annað, á vefsíðu hátíðarinnar á bæjarvefnum.

 

Frá laugardagsmorgni hátíðarhelgina 2004

Mynd: Guðmunda Ragnarsdóttir