Nú styttist í kvikmyndahátíðina Northern Waves sem haldin verður í FSN og víðar í Grundarfirði en dagskáin hefst kl. 17 á nk. föstudag. Aðstandandi hátíðarinnar hafur lagt á sig mikla vinnu og er dagskráin glæsileg en fyrir utan sjálfar bíómyndirnar verða

hljómsveitir á Kaffi 59 bæði föstudags- og laugardagskvöld. Fólk er hvatt til að kynna sér dagskrána og sýna lit en hana má skoða hér.