- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Sumarafleysing á bæjarskrifstofu
Leitað er að sumarafleysingu í ca. 80-100% starf á bæjarskrifstofu. Starfið felst í afgreiðslu viðskiptavina, símsvörun, skráningu reikninga, greiðslu reikninga, skráningu í skjalakerfi og öðrum tilfallandi verkefnum. Ráðningartími er ca. 2,5 mánuðir frá júní til ágúst eða skv. samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur: Menntun sem nýtist í starfi. Góð íslensku- og tölvukunnátta er skilyrði, enskukunnátta æskileg. Frumkvæði og sjálfstæði í starfi, jákvæðni, sveigjanleiki og góðir samskiptahæfileikar eru skilyrði. Nákvæmni og skipuleg vinnubrögð.
Starfið heyrir undir skrifstofustjóra og gefur Sigurlaug upplýsingar í síma 430-8500 eða sigurlaug@grundarfjordur.is