Í tilefni þess að síðasti kennsludagur leikskólans fyrir sumarfrí er í dag voru grillaðar pylsur fyrir leikskólabörnin auk þess sem Esso bauð þeim öllum upp á ís.

 

Íslenski fáninn var dreginn að húni og lóðin var skreytt í bak og fyrir. Hátíðin heppnaðist mjög vel og hefur gott veður þar mikið að segja.

Leikskólinn Sólvellir verður lokaður til og með 17. ágúst nk.