Sumarnámskeið Grundarfjarðarbæjar 2023 hefjast mánudaginn 5. júní.

Námskeiðin eru fyrir börn fædd 2014-2016. Um er að ræða þrjú 5 daga námskeið í júní.

Á námskeiðunum verður áhersla lögð á útileiki og skapandi vinnu og verður m.a. farið í gönguferðir, fjöruferð, fjallgöngu, dorgveiði, sund og heimsóknir til fyrirtækja og listamanna. 

Námskeiðin byrja og enda í eða við íþróttahúsið. Krakkarnir eiga að mæta með hollt og gott nesti fyrir kaffitíma, fyrir og eftir hádegi og hafa með sér vatnsbrúsa, sundföt (tiltekna daga) og léttan bakpoka. Ekki er leyfilegt að koma með gos, orkudrykki og sælgæti. 

Mikilvægt er að börnin séu alltaf klædd eftir veðri.

Starfsmenn sumarnámskeiðanna eru: Heiðdís Björk Jónsdóttir, Patrycja Aleksandra Gawor, Berglind Hólm Guðmundsdóttir, Aþena Þöll Þorkelsdóttir og Sólveig Stefanía Bjarnadóttir. Hægt er að ná í þær gegnum netfangið sumarnamskeid@grundarfjordur.is

Líkt og síðasta sumar, verður einnig boðið upp á KOFASMIÐJU, sem er smíðanámskeið fyrir börn fædd 2011-2013.

Kofasmiðjan verður í tvær vikur eða frá 13.-23. júní kl. 13-16.

Smiðjan er fyrir krakka sem vilja smíða og búa til kofa, bekk eða aðra smíðagripi sem þau mega taka heim með sér að loknu námskeiði.  Krakkarnir þurfa að koma með hamar og sög, en við sköffum timbur og nagla. Smiðjan verður staðsett við spennistöðina ofan við íþróttahúsið og ærslabelginn.

Umsjón með kofasmiðjunni hefur Toggi (Thor Kolbeinsson).

--

Verð á námskeiðum er eftirfarandi:

Sumarnámskeið: ein vika allan daginn kr. 12.000 og ein vika fyrir hádegi (kl. 9-12) eða eftir hádegi kl. 13-16) kr. 7.000.

Kofasmiðja: tvær vikur,  kr. 7000.

Systkinaafsláttur: 30% af verði fyrir annað barn og 70% af verði fyrir þriðja barn.

Sótt er um í gegnum vef Grundarfjarðarbæjar, sjá hlekk hér. Sækja þarf um sumarnámskeiðin fyrir kl. 13 föstudaginn 2. júní.

Frekari spurningum má beina til Óla, íþrótta- og tómstundafulltrúa Grundarfjarðarbæjar, í netfangið ithrott@grundarfjordur.is