Sumarnámskeið 2026

Sumarnámskeið Grundarfjarðarbæjar 2026 hefjast mánudaginn 8. júní nk. 

Námskeiðin eru fyrir börn fædd 2017-2019. Um er að ræða þrjú námskeið í júní, þ.e. þrjár vikur þar sem vikan er 4-5 virkir dagar að lengd (17. júní er frídagur). 

Á námskeiðunum verður áhersla lögð á náttúru í nærumhverfi Grundarfjarðar, útileiki og skapandi vinnu og verður m.a. farið í gönguferðir, fjöruferð, fjallgöngu, dorgveiði og sund. 

Vika 1 er 8.-12. júní  
Vika 2 er 15.-19 júní (17. júní er frídagur) 
Vika 3 er 22.-26. júní  

Umsjón 

Elfa Margrét Grímlaugsdóttir hefur umsjón með námskeiðinu. 

Elfu til aðstoðar verður Valdís Erla Garðarsdóttir, einnig munu áhugasamir krakkar úr vinnuskólanum vera til aðstoðar .  Hægt er að ná í þær gegnum forritið Abler. 

Námskeiðin byrja og enda í eða við íþróttahúsið. Krakkarnir eiga að mæta með hollt og gott nesti fyrir kaffitíma, fyrir og eftir hádegi og hafa með sér vatnsbrúsa, sundföt (tiltekna daga) og léttan bakpoka. Ekki er leyfilegt að koma með gos, orkudrykki og sælgæti.  

Mikilvægt er að börnin séu alltaf klædd eftir veðri.   

Verð 

Verð á námskeiðum eru eftirfarandi: 

Ein vika allan daginn kr. 13.500. 
Ein vika hálfan daginn (fyrir hádegi kl. 9-12 eða eftir hádegi kl. 13-16) kr. 8.000.  

Systkinaafsláttur: 30% af verði fyrir annað barn og 70% af verði fyrir þriðja barn en þá þarf að hafa samband við Hinrik íþrótta- og tómstundafulltrúa Grundarfjarðarbæjar í ithrott@grundarfjordur.is 

-- 

Nú fara allar skráningar í gegnum forritið Abler en margir foreldrar þekkja forritið þar sem UMFG hafa notað það til skráningar og samskipta.  Hlekkur hér á Abler. 

Sækja þarf um fyrir kl. 13:00 föstudaginn 5. júní fyrir fyrstu vikuna. 

Frekari spurningum má beina á ithrott@grundarfjordur.is  eða í síma 4308500 á opnunartíma Ráðhúss 10:00-14:00.