Í ár sem fyrri ár er boðið upp á glæsileg sumarnámskeið fyrir elsta árgang leikskólans og yngri árganga grunnskólans. Ólöf Rut Halldórsdóttir hefur umsjón með námskeiðunum þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Skráningareyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu bæjarins og á bæjarskrifstofunni.
Nauðsynlegt er að skráning fari fram fyrir kl 12.00 á föstudegi eigi barn að byrja á námskeiði á mánudegi í vikunni á eftir.

Systkinaafsláttur fyrir 2. barn er 35% og fyrir þriðja barn 70%.