Sumarnámskeið Grundarfjarðarbæjar hefjast mánudaginn 6. júní og verða í boði fyrir börn fædd 2005-2011. Námskeiðin verða í tvær vikur í júní og tvær vikur í ágúst.

 

Skráningareyðublöð fyrir sumarnámskeiðin má nálgast hér eða á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar. Áfram verður hægt að skrá börn á námskeið sumarsins í síðasta lagi á föstudeginum fyrir hvert námskeið.

Verð á námskeiðum er eftirfarandi: Ein vika fyrir hádegi kl 9-12 kr. 5.000, ein vika eftir hádegi kl 13-16 kr. 5.000 og ein vika allan daginn kr. 8.000. Systkinaafsláttur er veittur á annað barn sem nemur 30% af verði og á þriðja barn 70%.

Meðal þess sem boðið verður upp á á námskeiðunum er íþróttadagur, sveitarferð, fjallganga, sandkastalagerð, hjóladagar, stíflugerð, ratleikur, sund og fleira.

Mæting á námskeiðin er stúkumegin í íþróttahúsinu.

 

Nánari upplýsingar veitir Svana Björk Steinarsdóttir í síma: 893 4154.