Sumarnámskeið Grundarfjarðarbæjar 2024 hefjast mánudaginn 10. júní.

Námskeiðin eru fyrir börn fædd 2015-2017. Um er að ræða þrjú 5 daga námskeið í júní.

Á námskeiðunum verður áhersla lögð á náttúru í nærumhverfi Grundarfjarðar, útileiki og skapandi vinnu og verður m.a. farið í gönguferðir, fjöruferð, fjallgöngu, dorgveiði og sund.

Kristín Halla Haraldsdóttir hefur umsjón með námskeiðinu. Kristínu þekkja flestir, úr íþrótta- og félagsstarfi til langs tíma. Kristín er með meistaragráðu í náttúrugreinum frá Háskóla Íslands og er að klára BS í náttúru- og umhverfisfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Kristínu til aðstoðar verða þær Elsa Lillý Hafþórsdóttir, sem hefur verið sumarstarfsmaður hjá Grundarfjarðarbæ sl. tvö sumur, Sólveig Stefanía Bjarnadóttir sem hefur verið til aðstoðar á sumarnámskeiðum áður og Fanney María Jónsdóttir. Hægt er að ná í þær gegnum netfangið sumarnamskeid@grundarfjordur.is

 

Námskeiðin byrja og enda í eða við íþróttahúsið. Krakkarnir eiga að mæta með hollt og gott nesti fyrir kaffitíma, fyrir og eftir hádegi og hafa með sér vatnsbrúsa, sundföt (tiltekna daga) og léttan bakpoka. Ekki er leyfilegt að koma með gos, orkudrykki og sælgæti. 

Mikilvægt er að börnin séu alltaf klædd eftir veðri.

Kofasmiðjan

Líkt og síðustu tvö sumur verður einnig boðið upp á KOFASMIÐJU, sem er smíðanámskeið fyrir börn fædd 2012-2014.

Kofasmiðjan verður frá 10.-14. júní kl. 13-16.

Smiðjan er fyrir krakka sem vilja smíða og búa til kofa, bekk eða aðra smíðagripi sem þau mega taka heim með sér að loknu námskeiði.  Krakkarnir þurfa að koma með hamar og sög, en við sköffum timbur og nagla. Smiðjan verður staðsett við spennistöðina ofan við íþróttahúsið og ærslabelginn.

Umsjón með kofasmiðjunni, eins og síðustu sumur, hefur Toggi (Thor Kolbeinsson).

--

Verð á námskeiðum eru óbreytt frá síðasta sumri - þau eru eftirfarandi:

Sumarnámskeið: ein vika allan daginn kr. 12.000 og ein vika hálfan daginn (fyrir hádegi kl. 9-12 eða eftir hádegi kl. 13-16) kr. 7.000.

Kofasmiðja: kr. 7000.

Systkinaafsláttur: 30% af verði fyrir annað barn og 70% af verði fyrir þriðja barn.

Sótt er um í gegnum vef Grundarfjarðarbæjar, sjá hlekk hér. Sækja þarf um sumarnámskeiðin og kofasmiðjuna fyrir kl. 13 föstudaginn 7. júní.

Frekari spurningum má beina til Óla, íþrótta- og tómstundafulltrúa Grundarfjarðarbæjar, í netfangið ithrott@grundarfjordur.is