Sumarnámskeið Grundarfjarðarbæjar, síðari hluti, hefst eftir verslunarmannahelgi, þriðjudaginn 5. ágúst. 

Námskeiðið: 
  • er fyrir börn fædd 2016-2019
  • stendur yfir dagana 5.-8. og 11.-15. ágúst  
  • er hálfur dagur, eða kl. 9:00-12:00 ( 13:00-16:00 bætist við ef næg þáttaka næst) 

Á námskeiðunum verður áhersla lögð á náttúru í nærumhverfi Grundarfjarðar, útileiki og skapandi vinnu og verður m.a. farið í gönguferðir, fjöruferð, fjallgöngu, dorgveiði og sund.

Kristín Halla Haraldsdóttir hefur umsjón með námskeiðinu. Kristínu þekkja flestir, úr íþrótta- og félagsstarfi til langs tíma. Kristín er með meistaragráðu í náttúrugreinum frá Háskóla Íslands og er að klára BS í náttúru- og umhverfisfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Kristínu til aðstoðar verða þær Sólveig Stefanía Bjarnadóttir sem hefur verið til aðstoðar á sumarnámskeiðum áður og Hrafnhildur Hilmarsdóttir.  Hægt er að ná í þær gegnum netfangið sumarnamskeid@grundarfjordur.is

Námskeiðin byrja og enda í eða við íþróttahúsið. Krakkarnir eiga að mæta með hollt og gott nesti fyrir kaffitíma, fyrir og eftir hádegi og hafa með sér vatnsbrúsa, sundföt (tiltekna daga) og léttan bakpoka. Ekki er leyfilegt að koma með gos, orkudrykki og sælgæti. 

Mikilvægt er að börnin séu alltaf klædd eftir veðri.

Ein vika allan daginn kr. 13.500.
Ein vika hálfan daginn (fyrir hádegi kl. 9-12 eða eftir hádegi kl. 13-16) kr. 8.000. 

Veittur er 30% systkinaafsláttur fyrir annað barn og 70% af verði fyrir þriðja barn.

Sótt er um í gegnum vef Grundarfjarðarbæjar, sjá hlekk hér. Sækja þarf um fyrir kl. 13 sunnudaginn 3. ágúst.

Frekari spurningum má beina á grundarfjordur@grundarfjordur.is eða í síma 4308500 á opnunartíma Ráðhúss 10:00-14:00.