Sumarnámskeið Grundarfjarðarbæjar seinni hluti 2026 hefjast þriðjudaginn 4.ágúst nk.

Námskeiðin eru fyrir börn fædd 2017-2020. Um er að ræða 2 námskeið í ágúst, þ.e. tvær vikur þar sem vikan er 4-5 virkir dagar að lengd (3. ágúst er frídagur).

Á námskeiðunum verður áhersla lögð á náttúru í nærumhverfi Grundarfjarðar, útileiki og skapandi vinnu og verður m.a. farið í gönguferðir, fjöruferð, fjallgöngu og sund.

Vika 4 er 4. - 7 ágúst (3. ágúst er frídagur)
Vika 5 er 10. - 14. ágúst

Umsjón

Elfa Margrét Grímlaugsdóttir hefur umsjón með námskeiðinu.

Elfu til aðstoðar verður Valdís Erla Garðarsdóttir.  Hægt er að ná í þær gegnum Ablerinn.

Námskeiðin byrja og enda í eða við íþróttahúsið. Krakkarnir eiga að mæta með hollt og gott nesti fyrir kaffitíma, fyrir og eftir hádegi og hafa með sér vatnsbrúsa, sundföt (tiltekna daga) og léttan bakpoka. Ekki er leyfilegt að koma með gos, orkudrykki og sælgæti.  

Mikilvægt er að börnin séu alltaf klædd eftir veðri.  

Verð

Verð á námskeiðin eru eftirfarandi:

Vika 4 allan daginn kr. 11.000.

Vika 5 allan daginn kr. 13.500.

Vika 4 hálfan daginn (fyrir hádegi kl. 9-12 eða eftir hádegi kl. 13-16) kr. 6.500.

Vika 5 hálfan daginn (fyrir hádegi kl. 9-12 eða eftir hádegi kl. 13-16) kr. 8.000.

Systkinaafsláttur: 30% af verði fyrir annað barn og ef það á að skrá fleiri systkyni þarf að hafa samband við Hinrik Konráðsson íþrótta- og tómstundarfulltrúa.

 

Nú fara allar skráningar í gegnum forritið Abler en margir foreldrar þekkja forritið þar sem UMFG hafa notað það til skráningar og samskipta.  Hlekkur hér á Abler. 

Sækja þarf um fyrir kl. 18:00 mánudaginn 3. ágúst fyrir fyrstu vikuna. 

Frekari spurningum má beina á ithrott@grundarfjordur.is  eða í síma 4308500 á opnunartíma Ráðhúss 10:00-14:00.