Sögumiðstöðin, menningar- og upplýsingamiðstöð Grundarfjarðarbæjar, auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf í sumar. Starfið felst í upplýsingagjöf til ferðamanna, móttöku gesta í Sögumiðstöð og léttum þrifum. Leitað er að einstaklingi með ríka þjónustulund, góða tungumálakunnáttu og þekkingu á umhverfi og staðháttum í Grundarfirði.

Upplýsingar um starfið veitir markaðs- og menningarfulltrúi í síma 895-7110. Umsóknir sendist í netfang alda@grundarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til 16. apríl.