Grundarfjarðarbær leitar að áhugasömu fólki með ríka þjónustulund og metnað til að skila góðu starfi

Laus eru til umsóknar sumarstörf við eftirtaldar stofnanir bæjarins:

 

Áhaldahús Grundarfjarðarbæjar

Starfið felst í garðslætti og umhirðu garða og opinna svæða ásamt öðrum verkefnum áhaldahúss. Umsækjendur þurfa að vera 16 ára eða eldri, hafa verkvit og áhuga á útiveru auk þess að vera sjálfstæðir í vinnubrögðum.

Starfstímabil er frá miðjum maí til ágústloka. Vinnutími er frá kl. 8:00-17:00 alla virka daga.

Sundlaug Grundarfjarðar

Starfið felst í afgreiðslu og laugarvörslu, ásamt þrifum. Leitað er að umsækjendum af báðum kynjum. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, geta staðist þolpróf laugarvarða og hafa góða tungumálakunnáttu.

Starfstímabil er frá 21. maí til 22. ágúst. Unnið er á vöktum á opnunartíma sundlaugar.

Vinnuskóli – umsjónarmaður og hópstjóri

Leitað er að umsjónarmanni Vinnuskóla Grundarfjarðarbæjar sem starfræktur er í fimm til sex vikur í byrjun sumars. Starf umsjónarmanns felst í skipulagningu og umsjón vinnuskólans í samráði við verkstjóra áhaldahúss.

Jafnframt er leitað að hópstjóra fyrir vinnuskólann. Starf hópstjóra felst í aðstoð við umsjónarmann vinnuskólans.

Umsækjendur þurfa helst að hafa náð 20 ára aldri, hafa getu til að vinna sjálfstætt, góða hæfni í mannlegum samskiptum auk reynslu og ánægju af að vinna með unglingum. Starfstímabilið er frá 7. júní til 9. júlí. Vinnutími er frá kl. 8:30–15:30 alla virka daga, nema á föstudögum til kl. 14:30.

Tjaldsvæði Grundarfjarðar

Starfið felst í innheimtu tjaldsvæðisgjalda, þrifum og umhirðu tjaldsvæðis.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, hafa getu til að vinna sjálfstætt, góða hæfni í mannlegum samskiptum og góða tungumálakunnáttu.

Starfstímabil er frá síðari hluta maímánaðar til loka ágúst eða byrjun september. Vinnutími er breytilegur. Um hlutastarf er að ræða.

 

Eftirfarandi störf eru auglýst með fyrirvara um breytingar:

Sumarnámskeið – umsjónarmaður og aðstoðarmaður

Leitað er að umsjónarmanni sumarnámskeiða fyrir börn; um 2 vikur í júní og 2 vikur í ágúst. Starfið felst í utanumhaldi og umsjón námskeiðanna.

Jafnframt er leitað að aðstoðarmanni sem aðstoðar umsjónarmann við námskeiðahaldið.

Umsækjendur þurfa að vera hugmyndaríkir, hafa getu til að vinna sjálfstætt, góða hæfni í mannlegum samskiptum auk reynslu og ánægju af að vinna með börnum.

Starfstímabil er 7.-18. júní og 9.-20. ágúst. Vinnutími er kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00, auk undirbúningstíma. Um hlutastarf er að ræða.

Störfin eru auglýst með fyrirvara um breytingar sem felast í samvinnu við félagasamtök í bænum.

 

Sögumiðstöð, menningar- og upplýsingamiðstöð Grundarfjarðar

Starfið felst í upplýsingagjöf til ferðamanna, móttöku gesta í Sögumiðstöð, afleysingu á bókasafni, mögulega skönnun ljósmynda o.fl.

Umsækjendur þurfa að hafa góða tungumálakunnáttu ásamt þekkingu á umhverfi og staðháttum í Grundarfirði og nærsveitum, getu til að skipuleggja framsetningu upplýsinga, haft umsjón með aðföngum og notkun samfélagsmiðla. Sækja þarf námskeið sem boðið er upp á.

Um hlutastarf er að ræða frá miðjum maí til ágústloka.

Starfið er auglýst með fyrirvara um sumaropnunartíma og umfang, sem enn er óvisst.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala og Snæfellsness.

Umsóknarfrestur vegna allra starfa er til og með 6. apríl nk.

Sótt er um gegnum vefsíðu Grundarfjarðarbæjar - Sækja um 

 

Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofu í síma 430 8500. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is