Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Grundarfjarðarbær og Grundarfjarðarhöfn auglýsa eftir sumarstarfsfólki í eftirtalin störf. 

Vertu með okkur í skemmtilegum verkefnum í sumar!

 

 

"SLÁTTUGENGIÐ" OG STÖRF VIÐ ALMENNA UMHIRÐU

Hjá Grundarfjarðarbæ leggjum við mikið uppúr því að bærinn okkar sé snyrtilegur.  Við viljum vera "keppnis" í því!

Á sumrin þarf að slá og snyrta grænu svæðin, þökuleggja, mála og smíða og við þurfum gott fólk í það.

Starfið í sláttugenginu felst í garðslætti og umhirðu opinna svæða bæjarins, en líka í öðrum umhverfisverkefnum og viðhaldsverkefnum, mest utanhúss. 

Umsækjendur þurfa að vera fædd árið 2009 eða fyrr, hafa áhuga á að læra handbragð við umhirðu og viðhald, hafa gaman af útiveru, auk þess að vera sjálfstæð í vinnubrögðum. 

Starfstímabil er frá miðjum maí til síðari hluta ágúst. Vinnutími er að jafnaði kl. 8:00-16:00 virka daga. 

Störfin heyra undir bæjarverkstjóra. Upplýsingar gefur Elvar í síma 691-4343 eða verkstjori@grundarfjordur.is 

Hér ma´ sækja um

AFLEYSING Í ÞJÓNUSTUMIÐSTÖР  

Leitað er að starfsmanni í afleysingar við fjölbreytt verkefni sem falla undir áhaldahús og fasteignaumsjón. Um er að ræða starf við verklegar framkvæmdir, almenn viðhalds- og þjónustuverkefni tengd fasteignum bæjarins o.fl. Viðkomandi þarf að vera í samskiptum við stofnanir bæjarins, verktaka og þjónustuaðila.  

Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera ábyrgur, lipur í samskiptum, stundvís, hafa góða þjónustulund, vera sjálfstæður í vinnubrögðum og sýna frumkvæði í starfi. Hafa bílpróf og verklega þekkingu og reynslu. Hafa góða íslenskukunnáttu og almenna tölvukunnáttu, þ.m.t. notkun tölvupósts, o.fl.

Starfshlutfall og starfstími/lengd er samkomulagsatriði. 

Upplýsingar um starfið veitir Elvar bæjarverkstjóri í síma 691 4343 eða verkstjori@grundarfjordur.is og Björg bæjarstjóri í síma 430 8500 eða bjorg@grundarfjordur.is  

Hér ma´ sækja um

SUNDLAUG GRUNDARFJARÐAR/ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ

Það er fjör í sundlauginni á sumrin. Þangað koma íbúar á öllum aldri og gestir, bæði innlendir og erlendir. Við eigum ekki stærstu sundlaug landsins, en hún er notaleg og með fallegustu fjallasýnina - og svo erum við hætt að kynda hana með olíu! Öllum líður betur þegar umhverfið er hreint og þegar vel er hugsað um öryggi gestanna. 

Hér má lesa nánar og skoða myndir frá sundlauginni. 

Sumarstarf í íþróttamiðstöðinni felst í afgreiðslu og sundlaugarvörslu, ásamt því að þrífa klefa, búnað og fleira. Íþróttasalur fylgir, eftir atvikum, en hann er lítið notaður yfir sumartímann.

Leitað er að umsækjendum óháð kyni, en umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, geta staðist þolpróf laugarvarða og hafa þokkalega góða tungumálakunnáttu.

Starfstímabil er frá byrjun maí til 20. ágúst eða eftir samkomulagi. Unnið er á vöktum á opnunartíma sundlaugar. 

Störfin heyra undir íþrótta- og tómstundafulltrúa. Upplýsingar gefur Hinrik í síma 430-8500 eða ithrott@grundarfjordur.is

Hér má sækja um

VINNUSKÓLI - UMSJÓNARMAÐUR OG HÓPSTJÓRI

Leitað er að umsjónarmanni Vinnuskóla Grundarfjarðarbæjar sem starfræktur er í fimm til sex vikur fyrrihluta sumars. Ungmenni sem eru að ljúka 8.-10. bekk geta sótt vinnuskólann, en auk þess þau sem eru að klára 7. bekk vorið 2026. 

Sjá nánar hér um vinnuskólann - og sjá frétt hér þar sem fjallað er um öryggismál í vinnuskólanum.

Starf umsjónarmanns felst í að skipuleggja starf vinnuskólans í samvinnu við íþrótta- og tómstundafulltrúa, og að hafa umsjón með starfi og verkefnum vinnuskólans, í samráði við bæjarverkstjóra og þjónustumiðstöð.  

Jafnframt er leitað að hópstjóra fyrir vinnuskólann, en hópstjóri aðstoðar umsjónarmann í daglegu starfi vinnuskólans.

Umsækjendur þurfa helst að hafa náð 20 ára aldri, hafa getu til að vinna sjálfstætt, góða hæfni í mannlegum samskiptum auk reynslu og ánægju af að vinna með unglingum. 

Starfstímabilið hefst 8. júní. Vinnutími er frá kl. 8:30–15:30 virka daga nema á föstudögum, þá er hætt kl. 14:30. 

ATHUGIÐ - þegar líða fer að vori verður vinnuskólinn sjálfur auglýstur og geta nemendur hans sótt um þá. 

Störfin heyra undir íþrótta- og tómstundafulltrúa. Upplýsingar gefur Hinrik í síma 430-8500 eða ithrott@grundarfjordur.is

Hér má sækja um

SUMARNÁMSKEIÐ BARNA - UMSJÓN OG AÐSTOÐARFÓLK

Við viljum að það sé gaman og gott að vera barn í Grundarfirði. Sumarnámskeið fyrir börn eru liður í því. 

Við leitum að góðri manneskju til að hafa umsjón með sumarnámskeiðunum, en þau standa yfir í þrjár vikur í júní og tvær vikur í ágúst. Starfið felst í að undirbúa og halda utan um námskeiðin, í samvinnu við íþrótta- og tómstundafulltrúa. Ennfremur að eiga samskipti við foreldra og börn, og að leiðbeina aðstoðarfólki. Þetta er starf sem tveir gætu líka vel skipt á milli sín. 

Jafnframt er leitað að aðstoðarfólki sem hjálpar umsjónarmanni við námskeiðahaldið og starfið með börnunum.

Þetta eru réttu störfin fyrir hugmyndaríkt og skapandi fólk! Viðkomandi þurfa að geta unnið sjálfstætt og hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum, auk reynslu og ánægju af að vinna með börnum. 

Starfstímabil námskeiðanna er 8. júní – 26. júní og 4. - 14. ágúst,, auk þess sem gert er ráð fyrir undirbúningi hjá umsjónarmanni að vori. Vinnutími er kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00, auk undirbúningstíma umsjónarmanns. Um hlutastarf er að ræða, sem getur hentað með öðrum störfum síðar um sumarið.

Störfin heyra undir íþrótta- og tómstundafulltrúa. Upplýsingar gefur Hinrik í síma 430-8500 eða ithrott@grundarfjordur.is

Hér má sækja um

TJALDSVÆÐI GRUNDARFJARÐAR

Tjaldsvæðið okkar nýtur sívaxandi vinsælda. Frá maí-september fáum við að meðaltali um 5500 gesti á tjaldsvæðið, frá fjölmörgum þjóðlöndum. Svæðið er innanbæjar, í nágrenni sundlaugar og íþróttahúss. Hér má sjá upplýsingar um tjaldsvæðið.

Við leitum að viðbótarfólki til starfa á tjaldsvæðinu. Sumarstarfið felst í að innheimta tjaldsvæðisgjöld, þrífa og halda tjaldsvæðinu snyrtilegu og eiga almenn og góð samskipti við gesti okkar. Þetta er ekta starf fyrir þau sem elska að segja frá og spjalla við allskonar skemmtilegt fólk og vera fulltrúi fyrir bæinn okkar! 

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, hafa getu til að vinna sjálfstætt, góða hæfni í mannlegum samskiptum og góða tungumálakunnáttu.

Starfstímabil er frá síðari hluta maímánaðar til loka ágúst eða byrjun september, eða eftir samkomulagi. Vinnutími er breytilegur og um hlutastarf er að ræða, sem passar með öðrum störfum sem hér má velja úr.

Störfin heyra undir forstöðumann menningar- og markaðsmála. Upplýsingar gefur Pálmi í síma 430-8500 eða menning@grundarfjordur.is

Hér má sækja um

SUMARSTARFSFÓLK OG AFLEYSING VIÐ HAFNSÖGU HJÁ GRUNDARFJARÐARHÖFN

Grundarfjarðarhöfn sinnir ýmsum viðhaldsverkefnum yfir sumartímann, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að halda hafnarsvæðinu hreinu og snyrtilegu. 

Við þurfum fólk í almenn störf við ýmis viðhaldsverkefni, þrif og aðstoð við móttöku skemmtiferðaskipa. Leitað er að áhugasömu sumarstarfsfólki með ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni og metnað til að skila góðu starfi. Skilyrði er að tala íslensku og ensku, kostur er að hafa bílpróf.

Einnig er leitað eftir manneskju til að sinna störfum hafnsögumanns (lóðs) við móttöku skemmtiferðaskipa. Starfið getur falist í að sinna stakstæðum hafnsöguverkefnum, en getur einnig farið vel með afleysingu/sumarstarfi á höfninni.

Menntunar- og hæfniskröfur: Skipstjórnarnám (C-réttindi, gamla 2. stig) er skilyrði, sem og góð þekking á innsiglingunni. Skilyrði er að geta talað íslensku og ensku. Góðir samskiptahæfileikar, þjónustulund, sjálfstæð og vandvirk vinnubrögð eru einnig skilyrði. 

Störfin heyra undir hafnarstjóra og veitir Hafsteinn nánari upplýsingar í síma 861-1033 eða hafnarstjóri@grundarfjordur.is

Hér má sækja um

SUMARAFLEYSING Á BÆJARSKRIFSTOFU

Leitað er að sumarafleysingu í ca. 80-100% starf á bæjarskrifstofu. Starfið felst í afgreiðslu viðskiptavina, símsvörun, skráningu reikninga, greiðslu reikninga, skráningu í skjalakerfi og öðrum tilfallandi verkefnum. Ráðningartími er ca. 2,5 mánuðir frá júní til ágúst eða skv. samkomulagi. 

Menntunar- og hæfniskröfur: Menntun sem nýtist í starfi. Góð íslensku- og tölvukunnátta er skilyrði, enskukunnátta æskileg. Frumkvæði og sjálfstæði í starfi, jákvæðni, sveigjanleiki og góðir samskiptahæfileikar eru skilyrði. Nákvæmni og skipuleg vinnubrögð. 

Starfið heyrir undir skrifstofustjóra og gefur Sigurlaug upplýsingar í síma 430-8500 eða sigurlaug@grundarfjordur.is

 

UM ÖLL STÖRFIN

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. 

Umsóknarfrestur er til 8. apríl 2026 fyrir öll störfin. 

Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær fer fram á sakavottorð umsækjenda í þau störf þar sem unnið er með börnum og ungmennum, í samræmi við lög.