Grundarfjarðarbær leitar að sumarstarfsmönnum sem hafa ríka þjónustulund, eru stundvísir, áreiðanlegir og vinnufúsir.

 

Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:

Áhaldahús Grundarfjarðar

Starfið felst í garðslætti og umhirðu garða og opinna ásamt öðrum verkefnum áhaldahúss.

Umsækjendur þurfa að vera 16 ára eða eldri, hafa verkvit og áhuga á útiveru auk þess að vera reyklausir og sjálfstæðir í vinnubrögðum.

Starfstímabil er frá miðjum maí til ágústloka. Vinnutími er frá kl. 8:00-17:00 alla virka daga.

 

Sundlaug Grundarfjarðar

Starfið felst í afgreiðslu og laugarvörslu ásamt þrifum. Leitað er að umsækjendum af báðum kynjum.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, geta staðist þolpróf laugarvarða og hafa góða tungumálakunnáttu.

Starfstímabil er frá 22. maí til 19. ágúst. Unnið er á vöktum á opnunartíma sundlaugar.

 

Sögumiðstöð, menningar- og upplýsingamiðstöð Grundarfjarðar

Starfið felst í upplýsingagjöf til ferðamanna, móttöku gesta í Sögumiðstöð o.fl.

Umsækjendur þurfa að hafa góða tungumálakunnáttu ásamt þekkingu á umhverfi og staðháttum í Grundarfirði og nærsveitum.

Unnið er á vöktum alla daga vikunnar, kl. 9:00-17:00 á sumaropnunartíma hússins frá miðjum maí til ágústloka.

 

Sumarnámskeið – umsjónarmaður og aðstoðarmaður

Leitað er að umsjónarmanni sumarnámskeiða fyrir börn í júní og ágúst. Starfið felst í skipulagningu, utanumhaldi og umsjón námskeiðanna.

Jafnframt er leitað að aðstoðarmanni sem aðstoðar umsjónarmann við námskeiðahaldið.

Umsækjendur þurfa að vera hugmyndaríkir, hafa getu til að vinna sjálfstætt, góða hæfni í mannlegum samskiptum auk reynslu og ánægju af að vinna með börnum.

Starfstímabil er frá byrjun júní og fram í miðjan ágúst, með 5-6 vikna fríi á tímabilinu. Vinnutími er breytilegur. Um hlutastarf er að ræða.

 

Vinnuskóli – umsjónarmaður og hópstjóri

Leitað er að umsjónarmanni Vinnuskóla Grundarfjarðar sem starfræktur er í fimm vikur í byrjun sumars. Starf umsjónarmanns felst í skipulagi vinnuskólans í samráði við verkstjóra áhaldahúss.

Jafnframt er leitað að hópstjóra fyrir vinnuskólann. Starf hópstjóra felst í aðstoð við umsjónarmann vinnuskólans sumarið 2018.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, hafa getu til að vinna sjálfstætt, góða hæfni í mannlegum samskiptum auk reynslu og ánægju af að vinna með unglingum. Starfstímabilið er frá 4. júní til 9. júlí. Vinnutími er frá kl. 8:00–17:00 alla virka daga.

 

 

Tjaldsvæði Grundarfjarðar

Starfið felst í innheimtu tjaldsvæðisgjalda, þrifum og umhirðu tjaldsvæðis.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, hafa getu til að vinna sjálfstætt, góða hæfni í mannlegum samskiptum og góða tungumálakunnáttu.

Starfstímabil er frá júní til ágúst. Vinnutími er breytilegur. Um hlutastarf er að ræða.

 

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala og Snæfellsness.

 

Umsóknarfrestur vegna allra starfa er til og með 22. apríl nk.

 

Sótt er um gegnum vefsíðu Grundarfjarðarbæjar.

 

Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofu í síma 430 8500. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is