Grundarfjarðarbær leitar að sumarstarfsmönnum sem hafa ríka þjónustulund, eru stundvísir, áreiðanlegir og vinnufúsir.

 

Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:

 

Áhaldahús Grundarfjarðar

Starfið felst í garðslætti og umhirðu garða ásamt öðrum verkefnum.

Umsækjendur þurfa að vera 16 ára eða eldri, hafa verkvit og áhuga á útiveru auk þess að vera reyklausir og sjálfstæðir í vinnubrögðum.

Starfstímabil er frá miðjum maí til ágústloka. Vinnutími er kl 8:00-17:00 alla virka daga.

Sundlaug Grundarfjarðar

Starfið felst í afgreiðslu, laugarvörslu ásamt þrifum. Leitað er að umsækjendum af báðum kynjum.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, geta staðist þolpróf laugarvarða, hafa ríka þjónustulund og góða tungumálakunnáttu.

Starfstímabil er frá miðjum maí og fram í miðjan ágúst. Unnið er á vöktum á opnunartíma sundlaugar.

Sögumiðstöð; menningar- og upplýsingamiðstöð Grundarfjarðar

Starfið felst í upplýsingagjöf til ferðamanna, móttöku gesta í Sögumiðstöð o.fl.

Umsækjendur þurfa að hafa ríka þjónustulund, góða tungumálakunnáttu og þekkingu á umhverfi og staðháttum í Grundarfirði og nærsveitum.

Vinnutími er breytilegur á sumaropnunartíma hússins frá miðjum maí til ágústloka.

Sumarnámskeið

Auglýst er eftir umsjónarmanni með sumarnámskeiðum fyrir börn og aðstoðarmanni við sumarnámskeið bæjarins sumarið 2016.

Umsækjendur þurfa að vera hugmyndaríkir, hafa ríka þjónustulund, getu til að vinna sjálfstætt, góða hæfni í mannlegum samskiptum og reynslu og ánægju af því að vinna með börnum.

Starfstímabil er frá byrjun júní og fram í miðjan ágúst, með 2-3 vikna fríi á tímabilinu. Vinnutími er breytilegur. Um hlutastarf er að ræða.

Hópstjóri við vinnuskólann

Starfið felst í aðstoð við umsjónarmann vinnuskólans sumarið 2016. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, hafa getu til að vinna sjálfstætt, góða hæfni í mannlegum samskiptum og reynslu og ánægju af að vinna með unglingum. Vinnutími er kl 8:00-17:00 alla virka daga.

Starfstímabil er frá 1. júní til 3. júlí.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala og Snæfellsness.

Umsóknarfrestur vegna allra starfa er til og með 1. maí nk.