Grundarfjarðarbær leitar að sumarstarfsmönnum sem hafa ríka þjónustulund, eru stundvísir, áreiðanlegir og vinnufúsir.

 

Laus eru til umsóknar sumarstörf við eftirtaldar stofnanir:

Áhaldahús Grundarfjarðar

Starfið felst í garðslætti og umhirðu garða ásamt öðrum verkefnum.

Umsækjendur þurfa að vera 16 ára eða eldri, hafa verkvit og áhuga á útiveru og að vera reyklausir og sjálfstæðir í vinnubrögðum.

Starfstímabil er frá miðjum maí til ágústloka. Vinnutími er frá kl. 8:00-17:00 alla virka daga.

 

Sundlaug Grundarfjarðar

Starfið felst í afgreiðslu, laugarvörslu ásamt þrifum. Leitað er að umsækjendum af báðum kynjum.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, geta staðist þolpróf laugarvarða, hafa ríka þjónustulund og góða tungumálakunnáttu.

Starfstímabil er frá miðjum maí og fram í miðjan ágúst. Unnið er á vöktum á opnunartíma sundlaugar.

 

Sögumiðstöð, menningar- og upplýsingamiðstöð Grundarfjarðar

Starfið felst í upplýsingagjöf til ferðamanna, móttöku gesta í Sögumiðstöð og léttum þrifum.

Umsækjendur þurfa að hafa ríka þjónustulund, góða tungumálakunnáttu og þekkingu á umhverfi og staðháttum í Grundarfirði. Um er að ræða u.þ.b. 50% hlutastarf.

Vinnutími er breytilegur á sumaropnunartíma hússins frá miðjum maí til ágústloka.

 

 

Aðstoð á sumarnámskeiði

Starfið felst í aðstoð við leiðbeinanda á sumarnámskeiðum bæjarins sumarið 2014. 

Umsækjendur þurfa að hafa ríka þjónustulund, getu til að vinna sjálfstætt, góða hæfni í mannlegum samskiptum og reynslu og ánægju af því að vinna með börnum.

Starfstímabil er frá byrjun júní og fram í miðjan ágúst, með 2-3 vikna fríi á tímabilinu. Vinnutími er breytilegur. Um hlutastarf er að ræða.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala og Snæfellsness.

 

Umsóknarfrestur vegna allra starfa er til 21. apríl nk.

 

Sótt er um hér.

 

Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofu í síma 430 8500. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is