Sundlaugin opnar laugardaginn 9. apríl. Athugið að viðgerð á heitu pottunum er ekki lokið!

Fyrst um sinn verður sundlaugin opin sem hér segir:

Virka daga kl. 16-21.*

Laugardaga og sunnudaga kl. 12:15-18.

Hætt er að selja ofan í laug hálftíma fyrir lokun.

*Ath. á mánudögum og fimmtudögum eru sundæfingar til kl. 16:30. Aðeins er hægt að fara í heitu pottana á meðan á sundæfingum stendur.

Sama verð og í fyrra.

Börn undir 8 ára: Frítt.

Börn 8-15 ára: 100 kr.

Fullorðnir 200 kr.

Eldri borgarar: Frítt

Öryrkjar (75%): Frítt

Sundkort:

Börn, 10 miðar: 600 kr.

Fullorðnir, 10 miðar: 1.500 kr.

Þar sem laugin er lítil eru sundlaugargestir vinsamlegast beðnir að taka tillit til þess að tíminn frá kl. 19 á virkum dögum er einkum ætlaður sundfólki, þannig að þeir sem vilja leika sér í lauginni verða að víkja eftir þann tíma.

Börn undir 8 ára aldri fá ekki aðgang að sundlauginni nema í fylgd með ábyrgðarmanni, ekki yngri en 14 ára.

Ábyrgðarmaður tekur fulla ábyrgð á barni og fylgir því alltaf, hvort sem er í lauginni eða í pottunum.