Mikil vinna hefur verið lögð í breytingar á Sundlaug Grundarfjarðar að undanförnu og útkoman virkilega góð. Gústav Ívarsson húsasmíðameistari sá um verkið ásamt fleiri góðum fyrirtækjum í undirverktöku, svo sem GG Lögnum, Suðu ehf. og Taugum ehf.

Nú er bara að vonast eftir að veðrið fari að ganga niður svo bæjarbúar geti notið sín í sundi, pottum og nýju fínu vaðlauginni.