Svana Björk Steinarsdóttir var kjörinn íþróttamaður Grundarfjarðar síðastliðinn sunnudag. Svana Björk var tilnefnd af blakdeild UMFG enda lykilleikmaður í liði félagsins. Svana Björk er prúður og agaður leikmaður, fyrirmynd innan vallar sem utan og átti sæti í U-19 landsliði kvenna sem keppti á norðurlandamóti á dögunum.

Grundarfjarðarbær óskar Svönu Björk hjartanlega til hamingju með titilinn!